Vefstjórnun · Sjálfvirk samstilling · Spilun án nettengingar

LED auglýsingastjórnun fyrir íþróttasali

Búðu til senur með myndum og myndböndum, skilgreindu LED-vegginn einu sinni og spilaðu á skiltunum meðan á leik stendur — án þess að þurfa að vera á staðnum.

Hvers vegna LED Panel Display?

Einföld stjórnun

Stjórnendur og markaðsdeild setja inn efni í vefviðmóti. Engin flókinn hugbúnaður á staðnum.

Sérsniðið fyrir klúbbinn

Merki og litir klúbbsins er stillanlegt. Hvert félag fær sitt eigið umhverfi.

Áreiðanleg spilun

Á Windows tölvuna sem hýsir stýringar fyrir LED skiltin er sett upp lítið forrit sem sér um að sækja og spila efni (spilun virkar án nettengingar).

Hvernig virkar kerfið?

  1. Búa til efni og senur Þið hlaðið upp myndum og myndböndum, skilgreinið úttak veggjarins og skipuleggið svo tímalínu senu á röðum þess.
  2. Velja virka senu fyrir staðsetningu Hægt er að stilla margar staðsetningar LED borða og spila sama eða sitthvort efnið á þeim.
  3. Samstilla og spila Tölvan við LED borðin sækir nýjustu senuna og spilar hana sjálfkrafa.

Helstu eiginleikar

Úttak og vallarteikning

Skilgreindu vegginn einu sinni: stærð skiltis, hverja rönd sem fjölda skilta, og hvar röndin situr á vellinum. Senur deila því úttaki.

Tímalína og skipti

Myndefni er skipt út eftir stillanlegan tíma (t.d. 15 sekúndur).

Myndir og myndbönd

Styður algeng snið. Hægt að hraða eða hægja á myndbandi svo það passi við tímalínu.

Margar staðsetningar

Eitt félag, mörg LED svæði — hver staðsetning getur haft sína virku senu.

Spilun án nettengingar

Efni er geymt á staðnum eftir samstillingu. Spilun heldur áfram þó net sé óstöðugt.

Hýst lausn

Status sér um netþjón, uppfærslur og öryggisafrit — klúbburinn þarf ekki eigin netþjón.

Skjámyndir

Kynning á stjórnborði og notkun í raunverulegum umhverfi.

Yfirlit sena

Velja og virkja senur fyrir hverja staðsetningu

Senuritill

Raðir auglýsinga og tímalínan

Úttak

Fjöldi skilta í hverri rönd og hvar röndin situr á vellinum

Efnissöfn

Mörg efnissöfn til að geta flokkað efni

Efnissafn

Myndir og myndbönd í auglýsingahópum

LED Display Panel á Windows tölvu

Samstilling og spilun á staðnum

Hvað fylgir?

  • Hýsing og rekstur vefkerfisins
  • Aðgangur fyrir stjórnendur félags (Google-innskráning)
  • Leiðbeiningar og stuðningur við upphafsuppsetningu
  • Hægt að fá demo aðgang til að prófa kerfið

Eitt fast verð á mánuði - verð breytist ekki á leiktímabili.

Viltu sjá kerfið í virkni?

Hafðu samband og við setjum upp sýnikennslu eða kynningu fyrir klúbbinn þinn.

Hefja prufu Innskráning status@status.is